Hæ.. þar að segja ef einhver er að lesa á þessari mygluðu síðu
Þá er maður komin heim frá Hawaii sem var alveg ótrúlega gaman! Reyndar komin heim fyrir viku en hef bara ekkert nennt að blogga. Er samt búin að láta einhverjar myndir hérna inná í aðalvalmynd. Ekki nærri því allar en samt slatta. Við gerðum ekkert smá mikið í þessari ferð, stoppuðum í Las Vegas og Los Angeles, fórum í skemmtiferðasiglingu, þyrluflug, zipline, á strendur, polynesian garð, í búðir, synda með höfrungum, Mall of America og þar á svona nokkurnskonar sædýrasafn, sáum skjaldbökur og allskonar. Sá meira að segja stjörnuhrap

Í Polynesian culture center
6. ágúst flugum við til Minneapolis. Fórum á hótel og gistum þar hálfa nótt hehe, vöknuðum um 3-4 leytið minnir mig til að fara svo í flug. Þá flugum við til Las Vegas og stoppuðum þar í 2 klukkutíma og eyddum ábyggilega öllum þeim tíma að leita að terminal-inum okkar
En hann fannst á endanum sem betur fer og þaðan fórum við til Honolulu. Rakel og John komu og tóku á móti okkur á flugvellinum og gáfu okkur Hawaii kransa og svona
Við semsagt komum til Hawaii á þriðjudeginum og fórum að snorkla og í Polynesian culture center og versluðum smá og skoðuðum okkur um fram á sunnudag, en þá fórum við í skemmtiferðasiglinguna.

Við fórum fyrst á eyjuna Kauai og þar fórum við í þyrluflug og skoðuðum eyjuna. Það var ekkert smá flott og eyjan ótrúlega græn. Þegar við vorum búin á stoppinu á Kauai fórum við á stóru eyjuna. Þar stoppuðum við á 2 stöðum, fyrst á Hilo og svo Kona. Þar fórum við að skoða foss og í einhvern garð og svo kíktum við á ströndina.

Þegar stoppið á Big Island var búið fórum við til Maui og vorum þar í 2 daga. Þar fórum við í zipline og á strönd. Sáum alveg flottasta hótelgarð sem ég hef séð og ég verð sko einhverntíman að fara og gista á þessu hóteli

Allavega.. Þessi sigling var í viku þannig að við fórum aftur til Honolulu á sunnudegi. Restin af ferðinni.. Við fengum lánaðan bílinn hans Johns og fengum að keyra svolítið sjálf. Fórum og skoðuðum strendur og fórum í Sea Life Park og fengum að synda með höfrungum. Old news fyrir Bjarka því hann hafði farið áður en það var samt geðveikt gaman

Svo fórum við frá Hawaii á föstudagskvöldi. Um daginn skoðuðum við Aloha tower og svona ýmislegt og svo fórum við bara að pakka
Fórum svo í flug um 10 leytið.

Maður var ekkert smá þreyttur í flugvélinni eða flugvélunum og ég svaf bæði frá Honolulu til L.A. og frá L.A. til Minneapolis hehe
Svaf meira að segja í flugtaki í einhverri vélinni, man ekki hverri.

L.A.
Við komum til Minneapolis svo á laugardegi klukkan svona 3 um daginn. Þá fórum við á hótelið okkar og hentum draslinu inn á herbergi og fórum strax í Mall of America
Þar versluðum við, eða kanski aðallega ég, fórum á fiskasafnið eða hvað þetta nú var og vorum alveg í mollinu allan daginn. Fórum heim um hálf 10-10.

Svo fórum við líka daginn eftir í MOA, reyndar pínu of snemma, það var ennþá lokað þegar við komum hehe
Fengum okkur bara að borða og biðum eftir að það opnaði. Þá versluðum við aðeins meira og svo þurftum við að fara í flug heim. Fórum uppá flugvöll klukkan held ég 4 og chilluðum þar í keiluleik og svona
Rústaði Bjarka 2svar sinnum en hann vann mig einusinni með einu stigi af því að hann fékk að gera aftur

Kom svo heim á mánudeginum og fór beint í skólann. Núna er bara venjulega lífið tekið við, skólinn og vinna og læra og svona. Er einmitt búin að vera að læra en þurfti smá pásu og ákvað að skrifa eitt lítið og nett blogg hehe
Um helgina vorum við Birna að vinna en eftir vinnu á föstudeginum fengum við okkur pínu hvítvín og skelltum okkur með Pétri og Óla á Players sem var bara mjög fínt. Þar hittum við Arnar Georgs sem maður er ekki búin að sjá í mörg ár, hann bara orðinn dyravörður á Players hehe..

Nenni ekki að hafa þetta lengra. STELPUR sýniði að þið séuð á lífi!!
Blessíbili